Tíðindi

Súperprís til Kaupmannahafnar

  14/08/2012No Comments

Níu þúsund og níu hundruð krónur verður seint kallað sérstaklega hátt verð fyrir flug aðra leiðina til Kaupmannahafnar. Það verð er í boði á öllum flugum Wow Air næsta mánuðinn eða fram til 16. september.

Wow Air gerir hlé á ferðum til Kaupmannahafnar og selur restina á klink

Þá lýkur sumaráætlun hins nýja flugfélags sem sannarlega hefur velgt þeim er fyrir voru undir uggum eða stélum ef út í það er farið.

Ekki verður flogið til Kaupmannahafnar fyrr en síðar í vor á nýjan leik og er það sagt ástæða þess að nú fást fargjöldin á fáránlega góðu verði. Líklegri skýring er þó væntanlega að trekkja farþega frá samkeppnisaðilum þann rúma mánuð sem tilboðið stendur.

Engu að síður verður fargjaldið til hinnar yndislegu, en þó dýru, Kaupmannahöfn ekki ódýrar en þetta.

Heimasíða Wow Air hér.