Á föstudaginn kemur hefst sumaráætlun SAS flugfélagsins en þá býðst Íslendingum beint flug til Stokkhólms til 14. ágúst í sumar. Það hefur aðeins verið í boði hingað til með Icelandair en fargjöld SAS eru töluvert betri en hið íslenska félag býður.
SAS auglýsir af þessu tilefni fargjöld fram og til baka frá 35.900 krónur á mann með sköttum og gjöldum. Nett úttekt Fararheill á vef Icelandair júní, júlí og ágúst leiðir í ljós að þar fæst ekkert fram og til baka til sænsku höfuðborgarinnar á þessum tímapunkti undir 57 þúsund krónum fyrir manninn.
Munar þar um minna fyrir flesta og sparar fjögurra manna fjölskyldan sem nær þeim fargjöldum hjá SAS sér 60 til 80 þúsund krónur sem betur er hægt að eyða í dúllerí í Stokkhólmi sem er þokkalega dýr fyrir íslensk veski.
Heimasíða SAS hér.







