Tíðindi

Baðstrandastríð á Ítalíu

  18/06/2012október 24th, 2021No Comments

Merkilegt stríð er hafið milli Genóa og Bologna á Ítalíu en þær borgir eru aðsetur héraðsstjórna Ligúría héraðsins annars vegar og Emilia Romagna héraðs hins vegar. Styrinn stendur um hvort héraðið er með betri strendur.

Hart er deilt um hvort strendurnar við Týrenahafið eða Adríahafið séu betri og hreinni

Strendur á Ítalíu eru almennt ekki mjög hreinar þó fallegar séu. Nú deila heilu héruðin um hver bjóði bestu strendurnar

Eins og Ítala er von og vísa eru þungu höggin ekki spöruð þegar átök eiga sér stað. Upphafið má rekja til þess að ítölsk eftirlitsstofnun gaf fyrir sumarið ströndunum í Emilia Romagna toppeinkunn, 100 prósent, fyrir hreinar strendur og ómengaðan sjó fyrir baðgesti meðan strendur Ligúría rétt mörðu 90 prósent.

Það vakti nokkrar deilur enda ferðamennska mikilvægur atvinnuvegur í báðum héruðum. Svart bættist þó ofan á grátt þegar alþjóðasamtökin Bláfáni, sem taka út og gefa ströndum heimsins einkunn birtu sína einkunnagjöf. Þar fá strendur Ligúría betri einkunn og þykja hreinni en þær við Adríahafið í Emilia Romagna.

Fegurðin, eða hreinleikinn í þessu tilfelli, er þannig í augum sjáandans og einkunnagjöf markast af hverjum þeim er þær gefur.

Emilia Romagna er þó líklega mun vænlegri áfangastaður því í héraðinu eru yfir 130 kílómetrar af ströndum sem sóldýrkendur hafa aðgang að meðan strendur Ligúríu telja aðeins nokkra kílómetra sem þannig eru opnir hverjum sem er.