Flugfélagið Iceland Express hefur um tæplega tveggja mánaða skeið lagt á 500 króna bókunargjald á hvern einasta farþega í viðbót við það sem flokkast undir skatta og önnur gjöld. Bókunarupphæðin kemur ekki fram við bókun fyrr en á lokastigum.
Hingað til hafa svokölluð bókunargjöld takmarkast við að flug eða ferðir séu pantaðar gegnum síma eða á skrifstofu flugfélaga og ferðaskrifstofa. Er þá miðað við að þau dekki þann tíma sem starfsmaður þarf til að afgreiða erindi viðskiptavinarins samkvæmt svörum fyrirtækja sem slík gjöld taka. Geta þau skipt þúsundum króna í hvert skipti fyrir hvern og einn farþega.
En enginn hefur fyrr en nú tekið sérstakt bókunargjald fyrir bókun gegnum vefinn enda ferlið að mestu eða öllu leyti sjálfvirkt og því fellur ástæðan að greiða þurfi fyrir tíma starfsmanns um sjálft sig. Hvorki Icelandair né Wow Air fara fram á slíkt bókunargjald sé bókað netleiðis.
Engin svör hafa fengist frá Iceland Express hvað valdi þessu nýja gjaldi eða hvers vegna það er ekki tilgreint ásamt öðrum gjöldum og sköttum á vef félagsins.

Tafla Iceland Express yfir skatta, gjöld og aðrar greiðslur. Þar kemur fram neðst að bókunargjald sé tekið fyrir netbókanir en upphæðin sést ekki
LEIÐRÉTTING: Icelandair hefur sama háttinn á og krefur viðskiptavini sína um 500 króna bókunargjald í viðbót við það sem flokkast sem skattar og gjöld.







