Töluverð hætta er á að fleiri flugfélög í Evrópu fari í þrot á næstu mánuðum dýpki kreppan í Evrópu frekar en orðið er að mati Alþjóðasambands flugfélaga, IATA.

Aukin hætta er á að einhver flugfélög heimsins fari í þrot með litlum fyrirvara vegna kreppunnar í Evrópu
Kom þetta fram í máli forráðamanna sambandsins á ársfundi þess í Beijing í Kína en þar sagði aðalhagfræðingur IATA að í augum margra flugrekenda væri kreppan í Evrópu nú alvarlegra vandamál fyrir reksturinn en hátt olíuverð.
Kreppan, sem hefur í för með sér færri ferðir íbúa álfunnar sökum bágrar fjárhagsstöðu, væri líkleg til að þrengja svo að rekstri þeirra flugfélaga sem höllustum fæti standa að þau gætu lagt upp laupana með litlum fyrirvara. Áður hafði IATA spáð gríðarlegum samdrætti almennt í flugi á heimsvísu fyrir árið í heild sinni og virðist sú spá hafa að mestu gengið eftir það sem af er árs.
Ritstjórn Fararheill mælir með við ferðaþyrsta við þessar aðstæður að tryggja sig eins vel og kostur er gagnvart gjaldþroti flugfélags. Fljúga helst aðeins með stærri og þekktari flugfélögum því ekkert er fúlara en festast einhvers staðar í heiminum og verða að punga út tugum eða hundruð þúsunda í viðbót til að komast heim á nýjan leik komi til gjaldþrots smærri flugfélaga.






