Tekin hefur verið ákvörðun um að sameina og um leið fækka flugferðum hins nýja flugfélags Wow Air. Þetta gerist fyrstu vikuna sem flugfélagið starfar.

Fyrsta vikan hefur reynst Wow Air nokkuð erfið. Tafir hafa orðið og sala í ákveðnar ferðir dræmari en vonir stóðu til.
Staðfestir forstjóri Wow Air, Baldur Oddur Baldursson, þetta í viðtali við Fréttatímann en ástæðan er dræm sala. Verða því sameinaðar ferðir flugfélagsins til Stuttgart og Kölnar og síðar í júní verður ferðum til Lyon og Basel steypt saman.
Forstjórinn segir ástæðu þessa tvíþætta. Annars vegar ofmat á sölumöguleikum á umræddum leiðum en ekki síður hafi sett strik í reikninginn að Iceland Express hóf sölu ferða til Kölnar þegar ljóst varð að Wow hygðist fljúga þangað. Ekki er grundvöllur fyrir tveimur flugfélögum til þess staðar.
Baldur ítrekar þó að menn hafi verið undirbúnir undir ýmislegt og þar á meðal að ákveðnar ferðir seldust ekki nægilega vel til að standa undir sér. Hann segir einnig að tafir véla félagsins fyrstu vikuna séu leiðinlegar en viðbúið hafi verið að hnökrar kæmu í ljós í fyrstu ferðum nýs flugfélags. Öllu skipti að bregðast vel við gagnvart farþegum.






