Flugfélagið Wow Air býður til miðnættis í kvöld tilboðsverð á flugi aðra leiðina í júní til Parísar og Lyon.

Makalaust mikill verðmunur á flugi með Wow Air og hinum íslenska aðilanum á sömu slóðirnar…
Lítið lát virðist á tilboðum flugfélaganna sem hafa stanslítið boðist síðan í síðustu viku íslenskum neytendum til hagsbóta. Og ekki búið enn. Nú er í boði að fljúga aðra leiðina til Parísar eða Lyon í júnímánuði fyrir 9.800 krónur með sköttum og gjöldum.
Það er ekki nema rúmum 33 þúsund krónum ódýrara en allra ódýrasta ferðin með Icelandair til Parísar í júní svo dæmi sé tekið miðað við verðtöflu 30. maí klukkan 9:00.
Ritstjórn leyfir sér að mæla sérstaklega með 21. júní í París, Lyon og öllum stærri borgum Frakklands þegar fram fer hin eitilskemmtilega Fête de la Musique fer fram en þá taka hundruð tónlistarmanna sig til og fylla króka og kima og götur af ljúfri músik. Nánar hér.
Svo má alveg klappa saman lófum fyrir Wow Air. Þetta nýja flugfélag Skúla Mogensen virðist ætla að gera alvöru úr því að bjóða landanum flugfargjöld á svipuðu verði og þegnar velflestra Evrópuþjóða hafa notið um töluvert skeið. Vonandi heldur þetta áfram og við getum ferðast fyrir klink og ingenting árið 2020 🙂 Engin spurning um hvaða flugfélag verður mest, best og stærst á þeim tíma ef þetta heldur áfram…







