Flugfélagið Wow Air býður sértilboð þriðja daginn í röð. Að þessu sinni til Zurich í Sviss og Stuttgart í Þýskalandi og sem fyrr verður að bóka fyrir miðnætti í kvöld til að grípa gæsina.
Prísinn aðra leið með öllum sköttum og gjöldum er 13.900 krónur en flugtími er bundinn við júnímánuð. Er tilboðið ansi vænlegt sé miðað við fargjald Icelandair á sömu leið sama mánuð. Leit á vef þeirra leiðir í ljós að ekki finnst ódýrara flug út aðra leiðina ódýrar en 42.730 krónur á þessum tímapunkti. Því er hægt að fljúga út og heim aftur með Wow fyrir lægra verð en bara ferðin út hjá Icelandair.
Leiki ekki hugur að kneyfa öl og sleikja sólskin er nóg um að vera í báðum borgum. Sérstaklega er auðvelt að finna fína viðburði í Zurich en í júní halda þar tónleika meðal annarra þeir Elvis Costello og Tom Petty.
Heimasíða Wow Air hér.







