Tíðindi

Ekki fyrsta óhapp sömu þotu Icelandair

  21/05/2012No Comments

Atvikið á föstudaginn var þegar hjól féll af þotu Icelandair við flugtak frá Keflavíkurflugvelli var ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerðist. Málmþreyta olli því að hjólabúnaður sömu þotu gaf sig á Kastrup flugvelli árið 2001.

Fyrir ellefu árum síðan kom í ljós málmþreyta í hjólabúnaði sömu þotu Icelandair og missti eitt hjól í flugtaki á föstudagskvöldið

Samkvæmt bráðabrigðaniðurstöðu Rannsóknarnefndar flugslysa á atvikinu á föstudagskvöld virðist hjólið sem féll af hafa læst sig í flugtaki eftir að lega hafði gefið sig af því er fram kemur á vef RÚV. Brotnaði hjólið í sundur í kjölfarið og féll af þegar vélin tók sig á loft. Hvers vegna það gerðist er óljóst á þessari stundu.

Að sögn Ragnars Guðmundssonar hjá Rannsóknarnefnd flugslysa er ekki talið að óhöppin tengist. Atvikið 2001 hafi einnig verið annars eðlis þó þar hafi málmþreyta eða tæring ollið sprungu í þverbita sem tengir saman öxla og hjólabita þotunnar.

Tvívegis síðan það gerðist hefur verið alfarið skipt um hjólabúnað í umræddri þotu svo það er tæplega ástæða óhappsins á föstudagskvöld.