Annað hvort eru margir aðdáendur ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn einnig grimmir lesendur Fararheill.is eða að sú ferðaskrifstofa er einfaldlega sú langbesta að mati lesenda þess ágæta vefs.
Allavega sýna niðurstöður vefkönnunar Fararheill, þar sem fólk var spurt um bestu ferðaskrifstofu landsins, að Úrval Útsýn þykir fremst allra og það með verulegum mun.
69 prósent þeirra sem þátt tóku vildu meina að sú væri best meðan aðrar komu langt þar á eftir. 10 prósent nefndu Vitaferðir, 9 prósent Bændaferðir, fimm prósent nefndu Heimsferðir meðan að 7 prósent í viðbót sögðu aðrar og minni ferðaskrifstofur bestar.
Alls greiddu 258 atkvæði að þessu sinni og sem fyrr skal fram tekið að ekki er um vísindalega könnun að ræða á nokkurn hátt. Slíkt er einungis til gamans gert og ber að taka niðurstöðum í því ljósi. Þær geta þó gefið ákveðna hugmynd um stöðu mála hverju sinni.
Ný könnun er nú komin á vefinn. Þar er spurt um hug fólks til þess að láta farþega í yfirvigt greiða hærra verð fyrir sæti um borð í millilandavélum.






