Þú hefur nú sjö daga til að grípa sértilboð bandaríska flugfélagsins Delta til New York í sumar en flugfélagið býður til 3. maí fargjöld fram og til baka sem eru að minnsta kosti rúmlega 30 þúsund krónum ódýrari en nokkuð sem Icelandair býður.
Flugfélagið bandaríska mun hefja sumarprógramm sitt milli Keflavíkur og New York þann 2. júní næstkomandi og verður þann tíma eini samkeppnisaðili Icelandair frá Íslandi til Bandaríkjanna.
Býður Delta nú sértilboð á ferðum í allt sumar svo lengi sem bókað sé fyrir 3. maí og kostar farseðill fyrir einstakling þá 58.190 krónur á vef flugfélagsins.
Athugun ritstjórnar Fararheill á vef Icelandair leiðir í ljós að í júní, júlí og ágúst er ekkert að hafa undir 90 þúsund krónum. Í þeim tilfellum er ferðast á allra ódýrasta farrými en mörg flug félagsins á því rými eru uppseld. Fólk þarf þá að kaupa fargjald á dýrara farrými og þá bætist duglega við upphæðina.
Það frábæra við tilboð bandaríska flugfélagsins er að þeir eru ekkert að skera neitt við nögl eins og reyndin er með mörg flugfélögin. Ólíkt til dæmis þeim íslensku sem reglulega bjóða fargjöld á tilteknum tímum gildir tilboð Delta í allt sumar eða þann tíma sem flugfélagið flýgur hingað til lands fram í septemberbyrjun.
Heimasíða Delta hér.






