Bandíttar og dusilmenni eru komnir langt á leið að eyðileggja Evrópukeppnina í knattspyrnu sem fram fer í Póllandi og Úkraínu í sumar.

Ekki par sáttur Michel Platini með mörg hundruð prósenta hækkanir á hótelgistingu í Úkraínu yfir Evrópukeppnina í knattspyrnu. Mynd af vef UEFA
Það er að minnsta kosti mat Michel Platini, framkvæmdastjóra Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA, sem hefur krafist þess af stjórnvöldum í Úkraínu að þeir hefti í hvelli gríðarlegar hækkanir á verði gistingar í þeim borgum Úkraínu sem Evrópukeppnin fer fram.
Er þar um að ræða borgirnar Lviv, Kiev, Donetsk og Kharkiv sem leikið verður í í Úkraínu en í minnst tveimur borgum hefur kostnaður við hótelgistingu almennt hækkað frá áramótum um fleiri hundruð prósent. Platini sjálfur tiltók hótel sem bauð herbergi fyrir ári á 50 evrur, 8.400 krónur, en býður nú sams konar gistingu fyrir 65 þúsund krónur.
Slíkt er í bága við gerða samninga við gistihúsa- og hóteleigendur í umræddum borgum sem skrifa undir samninga þess efnis að hækka ekki verð á gistingu umfram ákveðið mark vegna Evrópukeppninnar.
Segir það sig enda sjálft að fótboltaáhugamenn sem áhuga hafa hljóta flestir hverjir að hætta við ef ekki finnst gisting á verði sem er eðlilegt því töluverður kostnaður fylgir því að sækja keppnina og kaupa miða. Gisting á 65 þúsund krónur er sennilegast umfram það sem flestir vilja borga fyrir bedda og morgunverð á meðan.






