Storkurinn kemur með börnin og nú kemur gæsin með tilboðin.

Fyrsta tilboð Gæsarinnar hefur litið dagsins ljós. Þar fæst 30 þúsund króna afsláttur á ferð til Kölnar
Gæsin.is, dótturfyrirtæki Hópkaup, er nýr vefur með sérstaka áherslu á ferðir og ferðalög og vinnur samkvæmt sömu forskrift og Hópkaup.is þar sem tiltekinn fjölda kaupenda þarf til að virkja tilboð.
Sjálf tilboðin eru af ýmsum toga og koma bæði frá flugfélögunum og íslenskum ferðaskrifstofum og eru eðlilega nokkuð undir hefðbundnu verði.
Fyrsta tilboð vefsins hefur litið dagsins ljós. Er það pakkaferð til Kölnar í samvinnu við Wow Air en um er að ræða 30 þúsund króna afslátt frá uppsettu verði.






