Forráðamenn Icelandair hafa að undanförnu skoðað kosti þess að bjóða farþegum sínum upp á net um borð í vélum félagsins. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvort flugfélagið muni bjóða slíka þjónustu á þessu stigi.
Þeim fjölgar ört flugfélögum heimsins sem bjóða netaðgang í flugi enda krafan um slíkt orðin hávær hjá unga fólkinu sérstaklega sem hryllir við að vera ekki beinlínutengt með einhverjum hætti 24/7.
Ekki síður þykir netaðgangur í flugi ansi jákvætt gagnvart farþegum í viðskiptaerindum sem margir hverjir geta þá unnið í háloftunum ekki síður en á skrifstofunni. Þá býður net vitaskuld upp á víðtæka skemmtun sem ekki fæst í afþreyingarkerfum flugfélaganna.
Flest bandarísku flugfélögin bjóða netaðgang í sumum eða öllum vélum sínum og þeim fjölgar sem það bjóða í Evrópu. Eitt flugfélag sem hingað flýgur til lands í sumar, Norwegian, býður netaðgang en ekkert íslensku flugfélaganna né easyJet gera það.
Í svari við fyrirspurn Fararheill segir Guðjón Arngrímsson, talsmaður Icelandair, þetta hafa verið skoðað með tilliti til kostnaðar og tækniöryggisatriði um borð. Ekkert sé þó ákveðið.
Ritstjórn Fararheill telur að pressan sé langmest á Icelandair vegna þessa þar sem stór hluti farþega þeirra ert bandarískir og þeir margir hverjir farnir að venjast slíkri þjónustu innanlands.






