Fólk sem glímir við öndunarfæra- eða hjartavandamál ættu sennilega að hugsa sig tvisvar um áður en lagt er af stað í draumaferð til Kína. Loftmengun er það geigvænleg víða í borgum og reyndar sveitum landsins að hætt er við að draumaferðin snúist upp í martröð.
Eins og Fararheill hefur greint frá er Kína ekki bara orðið efnahagsstórveldi heldur og eitt vinsælasta ferðamannaland heims og skákaði á síðasta ári Spáni úr þriðja sætinu sem vinsælasta ferðamannaland heims.
Það er gott og blessað enda ótalmargt að sjá og upplifa í Kína og áhugi Íslendinga á heimsóknum þangað aukist jafnt og þétt. Lengi hefur verið vitað að loftmengun í borgum Kína er hræðileg og ósjaldan dagar þar sem vart sést milli húsa vegna mengunar.
En aðeins eru nokkrar vikur síðan kínversk stjórnvöld birtu fyrsta sinni tölur um PM2.5 gildi í nokkrum borgum en sá staðall á að sýna hversu mikið sót og agnir minni en 2.5 mikrógrömm eru í loftinu hverju sinni. Tölurnar eru sláandi og sem dæmi eru meðaltalsgildin fyrir höfuðborgina Beijing hvorki meira né minna en 70 mikrógrömm á hvern kúbikmetra lofts.
Þó ekki fari mikið fyrir aðvörunum þeirra er auglýsa ferðir til Kína þá metur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin það svo að í slíkri mengun eigi fólk með öndunarsjúkdóma eða hjartakvilla alls ekki að fara út fyrir hússins dyr. Allir aðrir sem heilbrigðir eru eiga að gæta þess að reyna ekki á sig sé mengun svo mikil. Með öðrum orðum; þá getur beinlínis verið lífshættulegt fyrir sjúklinga að ferðast til Kína og Beijing er jú vinsælasti áfangastaður ferðamanna í landinu.






