Þ að kostar fjögurra manna fjölskyldu að lágmarki hátt í 40 þúsund krónur að heimsækja hið fræga Lególand í Billund miðað við gengi íslensku krónunnar gagnvart þeirri dönsku. Þá ótalinn kostnaður við mat, drykki eða annað það sem fjölskyldan brúkar í þessum vinsæla garði.

Það kostar sitt að hafa ofan af fyrir smáfólkinu. Mynd fdecomite

Það kostar sitt að hafa ofan af fyrir smáfólkinu. Mynd fdecomite

Reynsla ritstjórnar Fararheill af Lególandinu danska er góð. Legóbyggingarnar mikið sjónarspil og fjölda skemmtilegra leiktækja er að finna í garðinum sem smáfólkið missir sig eðlilega alveg yfir og sumir þeir fullorðnu líka. Þar er vel hægt að eyða heilum degi eða dögum ef út í er farið en venjan er að þrjár til fjórar klukkustundir eru ívið nóg fyrir þreytta foreldra og á köflum fyrir smáfólkið líka.

Miðað við fjórar stundir kostar því hver klukkustund fjölskylduna rúmlega níu þúsund krónur og það gjald veitir engan forgang í tæki og tól og á annatímum að sumarlagi mun töluverður hluti tímans fara í bið eftir leiktækjum garðsins.

Hægt er að spara allt að tíu þúsund krónum fyrir fjögurra manna fjölskyldu á að bóka miða fyrirfram á netinu og þá með dags fyrirvara hið minnsta og helst meira en það. Sem er kjörið ef fólk vill planleggja allt til dauða.

Í hinum nýlega vatnsleikjagarði Lalandia sem risið hefur skammt frá Lególandi er ekki jafn mikið um að vera þó sá garður sé skemmtilegur fyrir alla buslara heims. Hyggist sama fjögurra manna fjölskylda slá tvær flugur í einu höggi og prófa hann líka stundarkorn bætast 17.400 krónur við heimsóknarkostnaðinn samkvæmt gengi dagsins.

Sé miðað við að báðir staðir séu heimsóttir á einum degi þarf fjölskyldan að greiða sem nemur kringum 60 þúsund krónum að lágmarki til þess eins og komast inn á bæði svæðin. Ef við skjótum inn einhverju matarkyns og drykkjum með er líklega nærri lagi að tala um rúmlega 70 til 80 þúsund króna kostnað allt í allt.

Allt um Billund hér.