Tíðindi

Easyjet sparar sér drjúgan skilding

  08/02/2012desember 23rd, 2014No Comments

Breska lágfargjaldarflugfélagið easyJet hyggst fjölga ferðum sínum til Íslands og fljúga hingað til lands til áramóta í stað sumarloka eins og fyrirhugað var í fyrstu. Með þeim gjörningi fær flugfélagið breska verulega afslætti á gjöldum á Keflavíkurflugvelli.

Ekki er um fjölgun flugferða í viku hverri að ræða heldur aðeins framlengingu á flugáætlun félagsins hvers talsmenn segja sölu ferða til og frá Íslandi gengið vonum framar. Í fréttatilkynningu er talað um að átta þúsund sæti hafi í heildina selst hingað til.

Vekur athygli ritstjórnar Fararheill að forsvarsmenn easyJet geta aðeins metið sölu ferða frá mars til september eða þann tíma sem upprunaleg áætlun gerði ráð fyrir. Sé eftirspurn eins mikil og gefið er í skyn væri ekki eðlilegra að fjölga ferðum yfir háannatímann?

Miðað við þrjár ferðir í viku í sex mánuði og að vélar flugfélagsins séu fullar er pláss fyrir tæplega 32 þúsund farþega. Séu átta þúsund miðar seldir á enn eftir að fylla 75 prósent af sætum sem í boði verða fram í september. Engum hótelstjóra dettur í hug að stækka hótelbyggingu þó 25 prósent herbergja séu fullbókuð eða hvað?

Ritstjórn taldi líklegra að aukinn áhugi easyJet væri tilkominn vegna þess að með því að lengja ferðatíma út árið lækka gjöld flugfélagins á Keflavíkurflugvelli og falla alveg niður næsta vetur.

Er þetta tilkomið vegna nýrra reglna Isavia en samkvæmt þeim fá flugfélög 75 prósent afslátt af gjöldum á Keflavíkurflugvelli svo lengi sem um nýja flugleið sé að ræða. London Luton til Keflavíkur fellur undir þá skilgreiningu.

Talsmaður flugfélagsins svaraði ekki fyrirspurnum þessu að lútandi en hjá Isavia er þetta staðfest.