Tíðindi

Ekki frá London 13. ágúst

  21/01/2012desember 16th, 2013No Comments

Hvað sem þú gerir ekki fljúga heim til Íslands frá Heathrow í London þann 13. ágúst næstkomandi. Ástæðan sú að þann dag hverfa allir íþróttamenn og fulltrúar af landi brott eftir Ólympíuleikanna og allt fer fólkið um Heathrow flugvöll.

Fátt er leiðinlegra en bið á flugvöllum. Hætt er við töluverðum töfum á Heathrow flugvelli í London í ágúst

Vitaskuld er þjóðráð að fara þann dag sé hátt á vinsældarlistanum að bíða lon og don á flugvöllum. Hætt er við að tafir verði gríðarlegar því Heathrow flugvöllur alla jafna er verulega troðinn af fólki og flugvélum.

Flugvallaryfirvöld hafa af þessu miklar áhyggjur samkvæmt nýrri skýrslu en útlit er nú fyrir að 45 prósent fleiri fari um völlinn þennan dag en gera dags daglega. Það er klár ávísun á tafir og leiðindi og því vænlegast að fljúga annan dag en þennan vilji fólk forðast slíkt.

Auðvitað er pínu heillandi að lenda í röð með Usain Bolt eða planta sér í sæti við hlið Michael Phelps en líkurnar á því eru engar þar sem allt íþróttafólk fær sérinngang í flugstöðina þennan dag og er haldið frá almúganum eftir getu.

Eingöngu Icelandair flýgur frá Heathrow flugvelli til Íslands.

Hugsanlega verður auðveldara að fljúga þennan dag frá Luton, Gatwick eða Stansted flugvöllum en ekki veðja á það heldur því tug og jafnvel hundruð þúsunda gesta leikanna þurfa líka að koma sér heim um þetta leyti.