Tíðindi

Að gefnu tilefni

  17/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Þættinum hefur borist bréf. Reyndar fleiri en eitt og fleiri en tvö þar sem sjálfskipaðir málfarsráðunautar fara hörðum orðum um greinaskrif á þessum vef.

Er ritstjórn ljúft og skylt að varpa ljósi á óhefðbundið orðalag, tökuorð og í stöku tilfellum heimatilbúin orð sem notuð eru í hinum og þessum greinum hér á Fararheill.

Fyrir þessu eru tvær meginástæður fyrir utan að Eiður Guðnason starfar ekki hér. Í fyrsta lagi er það skoðun ritstjórnar að íslenskt mál sé lifandi mál en ekki steingervingur. Staðið vatn er ódrykkjarhæft meðan ekkert slekkur þorsta eins og flæðandi lækjarvatn af heiði.

Seinni ástæðan er þó veigameiri. Óhefðbundið orðalag kemur í veg fyrir að erlendar þýðingarvélar geti með góðu móti þýtt greinar af vef Fararheill. Mikil vinna fárra liggur að baki mörgu á vef þessum og við höfum reynslu af stuldi á efni okkar. Aukinheldur gerir þetta öðrum þeim er nota vilja efni af Fararheill án leyfis aðeins erfiðara fyrir en ella.

Lifið heil