Tíðindi

Dýr helgarferð á hestakeppni

  05/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsir nú í samvinnu við Ice Events helgarferð til Óðinsvé í Danmörku þar sem fram fer hin árlega hestakeppni Worldtoelt seinnihluta febrúar.

Viðburðurinn bæði skemmtilegur og heillandi fyrir íslenska hestamenn enda er um að ræða keppni íslenskra hesta í Danmörku og engin tilviljun að miðar seljast jafnan upp á þessa keppni.

Úrval Útsýn býður slíka ferð með miða og hóteli við mótssvæðið í úthverfi borgarinnar með morgunverði fyrir tvo á 295 þúsund krónur frá 23. febrúar til 26. febrúar en keppnin sjálf fer fram 24. og 25. febrúar.

Það verð kann að heilla einhverja en fyrir hina finnur ritstjórn Fararheill svipaða ferð á öllu lægra verði þori fólk að heimsækja borgina dönsku með lest frá Kastrup á eigin spýtur án fararstjóra.

Það gerum við með að bóka með Icelandair til Köben 23. febrúar og til baka 26. febrúar. Sú flugferð fæst á 36.920 á mann eða 73.840 fyrir tvo. Gott fjögurra stjörnu hótel nær miðborginni en hótel ÚÚ en ekki fjarri mótssvæðinu heldur, Hotel Knudsen Gaard, með netaðgangi og morgunverði fæst á 61.530 krónur. Lestarferð frá Kastrup að lestarstöðinni í Óðinsvé fæst á 4.064 krónur á mann fram og til baka eða samtals 8.128 krónur. Að síðustu kosta dýrustu miðar báða keppnisdagana, svokallaðir partout miðar, 10.288 krónur á mann eða samtals 20.576 krónur miðað við gengi gagnvart danskri krónu þann 4. janúar 2011. Bætum við fjögur þúsund krónum í leigubíl til og frá lestarstöðinni á komu- og brottfarardag.

Samtals kostnaður á mann verður með þessum hætti 84.037 krónur eða samtals 168.074 krónur ferðist tveir saman. Það er 127 þúsund krónum ódýrara en ferð Úrval Útsýn. Hafa skal þó í huga að í þeirri ferð er fararstjóri með og gist á hóteli við keppnissvæðið sem vissulega getur verið kostur.

Hægt er að gera þessa ferð enn ódýrari með því að lækka standardinn á hótelinu sem er jú ekki spennandi staður til að hanga á í stuttri helgarferð. Nær að eyða peningunum í verslun eða skemmtun að mati ritstjórnar.

Fararheill óskaði upplýsinga um kostnaðarliði hjá Úrval Útsýn en fékk ekki.