Tíðindi

Iceland Express aftur til Stansted

  03/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Ferðasalinn Iceland Express tilkynnti fyrir áramótin að frá og með júní 2012 muni fyrirtækið bjóða upp á flug til tveggja flugvalla nálægt London; Gatwick og Stanstad.

Lengi vel flaug Iceland Express eingöngu til Stansted flugvallar en það breyttist árið 2009 þegar áætlunarflug hófst til Gatwick flugvallar sem er aðeins nær London en Stansted.

Verður um flug einu sinni í viku að ræða til Stansted frá og með næsta júní og segir í tilkynningu að ferðasalinn vilji með þessu áfram tryggja að fyrirtækið verði í fararbroddi til og frá London.

Mikið er á seyði í þeirri borg í sumar. Ólympíuleikarnir hefjast þar í lok júlí og ekki verða síður dýrðir í borginni á demantsafmæli Elísabetar drottningar í júní. Hefur þetta, auk meiri samkeppni til og frá London, áreiðanlega haft sitt að segja með þessa ákvörðun Iceland Express.

Ritstjórn hefur þó efasemdir um að landinn sæki London mikið heim yfir sumarmánuðina. Vitaskuld heilla Ólympíuleikar marga en troðfull borg af túristum síður. Þá eru vandfundin sæmileg hótel nálægt miðbænum yfir þann tíma sem finnast undir 30 þúsund krónum nóttin eins og staðan er í dag og það verð mun aðeins hækka.

Á hinn bóginn er ekki til betri staður til tengiflugs en frá Stansted. Það helgast af þeim mikla fjölda lágfargjaldaflugfélaga sem þaðan fljúga.