Tíðindi

Verkföll vegna lággjaldaflugfélags

  18/12/2011desember 6th, 2014No Comments

Verkföll hafa sett strik í reikning ferðalanga á Spáni en flugstjórar hjá Iberia neita að fljúga sökum hugmynda fyrirtækisins um að setja á stofn sérstakt lágfargjaldaflugfélag á næsta ári.

Hefur Iberia þurft að fella niður tæplega hundrað flugferðir sínar í dag og ekki útilokað að grípa þurfi til þess ráðs fram eftir vikunni meðan ekki tekst að friða flugstjórana.

Snýst málið um að Iberia ætlar að mæta harðnandi samkeppni á Spáni með stofnun Iberia Express sem á fljúga fólki milli staða fyrir lægri fargjöld en Iberia getur boðið. Til þess ætlar fyrirtækið að ráða yngri og reynsluminni flugstjóra og flugþjóna enda þá hægt að greiða lægri laun en ella.

Það fer eðlilega fyrir brjóstið á starfandi flugstjórum og áhöfnum og þess vegna hefur verið gripið til þessa ráðs að fara í verkfall með stuttum fyrirvara.