Alls ekkert á að breytast nema til batnaðar gagnvart farþegum ferðasalans Iceland Express nú þegar nýtt flugfélag flýgur með viðskiptavini fyrirtækisins.

Farþegarými þotna CSA sem flýgur eftirleiðis fyrir Iceland Express. Meira sætisrými og nýrri vélar en Astreus bauð áður upp á. Mynd Tomás Zorvan
Þetta fullyrðir blaðafulltrúi fyrirtækisins, Heimir Már Pétursson, við Fararheill og vísar þar til áætlana og verðstefnu fyrirtækisins fram á næsta ár. Engar sérstakar hækkanir koma til vegna breyttra aðstæðna og engin breyting verður heldur á áfangastöðum fyrirtækisins í Evrópu.
Eins og Fararheill greindi frá í dag fær tékkneska flugfélagið CSA betri einkunn meðal farþega sinna en Icelandair fær hjá sínum farþegum sé mið tekið af vef Skytrax þar sem farþegar geta sagt skoðun sína á flugfélögum og gefið þeim einkunn fyrir þjónustu og framkomu.
Þykir CSA þar standa sig vel að halda tímasetningar, nokkuð sem Iceland Express þarf nauðsynlega á að halda, en einnig þykja þotur þeirra, flugþjónar og þjónusta um borð yfir meðallagi. Fær flugfélagið einkunnina 5,2 af tíu mögulegum meðan Icelandair er með einkunnina 5,1.
Að sama skapi er Iceland Express eins og sakir standa með allra lélegustu flugfélögum og slefar aðeins í 1,7 af tíu mögulegum á sama lista. Með tilkomu CSA ætti sú einkunn að fara hratt upp á við enda þotur þeirra bæði nýrri og ekki jafn þröngt um fólk sem er af mörgum talið eitt það versta við að fljúga með vélum Astreus.






