Sóknarhugur virðist vera í forsvarsmönnum Iceland Express þessi dægrin. Nú blæs ferðasalinn til sams konar tilboðsdags og samkeppnisaðilinn Icelandair er hvað þekktastur fyrir. Frá og með hádegi í dag til hádegis á morgun verður hægt að fá feitan afslátt á flugfari til London, Kaupmannahöfn, Berlínar og New York.
Ef frá er talinn Heiti pottur Iceland Express hefur lítið farið fyrir slíkum sólarhringstilboðum hingað til og kannski til marks um nýja stefnu nýs forstjóra.
Í boði eru flugferðir aðra leiðina til London, Kaupmannahafnar og Berlínar í nóvember og desember á 11.900 krónur með sköttum og gjöldum. Auk þess fargjöld aðra leiðina til New York á 22.900 krónur.
Verst er að þeir sem ekki fá dagblöðin send heim til sín, sem er meirihluti fólks úti á landsbyggðinni svo dæmi sé tekið, hefur enga hugmynd um tilboð þetta því ekki stafur er um þetta á vef Iceland Express þegar þetta er skrifað.
Þar kostar stakt far til London ennþá 15.900 og 25.900 til New York. Sá verður aldeilis sáttur sem kaupir þar flugfar án þess að hafa séð dagblöðin.






