Tíðindi

Sumaráætlun Iceland Express kynnt á næstunni

  27/10/2011desember 5th, 2014No Comments

Gert er ráð fyrir að sumaráætlun ferðasalans Iceland Express verði tilbúin eftir eina til tvær vikur en þar sem hún liggur ekki fyrir geta áhugasamir ekki pantað ferðir með fyrirtækinu nema til fimm af 23 áfangastaða eftir áramótin eins og sakir standa.

Fjallaði Fararheill.is um þá staðreynd að eingöngu er nú hægt að bóka eftir áramótin til fimm af þeim áfangastöðum sem Iceland Express býður alla jafna flug til. Skýtur það skökku við þar sem fjöldi fólks gerir áætlanir um vetrar-, páska- og sumarferðir sínar á þessum tíma og ekki síst þar sem yfirleitt er hægt að spara nokkrar upphæðir með slíkri forsjálni.

Að sögn Heimis Más Péturssonar, upplýsingafulltrúa Iceland Express, stafar þetta af því að sumaráætlun félagsins er ekki fullkláruð en verið er að leggja lokahönd á þá áætlun og ættu því viðskiptavinir að geta bókað flug til allra áfangastaða innan viku eða tveggja.

Aðspuður hvort ekki sé eðlilegt að áætlun félagsins væri þegar komin fram segir Heimir það vissulega eðlilegra. Töfin skýrist meðal annars af tíðum forstjóraskiptum hjá Iceland Express en þrír mismunandi einstaklingar hafa setið stól forstjóra síðustu fimm vikurnar.