Tíðindi

Universal skemmtilegri en Disney

  26/10/2011desember 5th, 2014No Comments

Skemmtilegasti skemmtigarðurinn á Orlando svæðinu í Flórída er Ævintýraeyja Universal, Universal Islands of Adventure, sem fékk ívið fleiri atkvæði en Töfraríki Disney, Magic Kingdom, í viðamikilli könnun vestanhafs.

Við liggur að fleiri skemmtigarðar séu á Orlando svæðinu í Flórída í Bandaríkjunum en tali tekur og fjölgar þeim árlega. Teljast nú vera á þessu svæði 16 stórir skemmtigarðar en heilan dag tekur að lágmarki að skoða hvern og einn þeirra.

Samkvæmt könnun sem gerð var meðal foreldra sem Flórída heimsóttu kom í ljós að Eyjuævintýri Universal vakti meiri lukku en Mikki mús, Gúffi og félagar í ríki Disney en sá hefur gegnum tíðina verið sá vinsælasti. Eyjuævintýragarðurinn er ekki sami garður og Universal Studios Flórída sem margir Íslendingar þekkja heldur annar garður skammt frá.

Röðin varð þessi:

  1. Universal Islands of Adventure
  2. Disney´s Magic Kingdom
  3. Epcot
  4. Universal Studios
  5. Sea World
  6. Busch Gardens
  7. Disney Animal Kingdom
  8. Disney Hollywood Studios
  9. Gatorland
  10. Lion Country Safari