Tíðindi

Grenjandi börn mest í taugar flugfarþega

  22/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Grenjandi ungabörn fara mest í taugarnar á íslenskum flugfarþegum í farþegaflugi samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Fararheill.is. Þá þykir ekki fýsilegt heldur að sitja við hlið feitlaginna einstaklinga.

Kannaði Fararheill.is hvað landsmönnum þætti allra leiðinlegast í farþegaflugi og svöruðu 39 prósent á þá lund að leiðinlegast væri að hlusta á grenjandi ungabörn. Er þetta í samræmi við stærri og vísindalegri erlendar kannanir en eins og Fararheill hefur greint frá fer þeim fjölgandi flugfélögunum sem meina börnum og barnafjölskyldum að fljúga á ákveðnum tímum og farrýmum.

Litlu færri, 37 prósent, sögðu leiðinlegast að sitja við hlið feitlaginnar manneskju í flugferð. Án þess að ritstjórn hafi nákvæma skýringu á ástæðum þess má leiða að því líkur að það sé út af plássleysi. Það er til að mynda ein ástæða þess að til eru erlend flugfélög gera kröfu um að fólk yfir ákveðinni þyngd greiði fyrir tvö sæti í flugferðum.

Nítján prósent þátttakenda sögðu bið eftir klósettinu það leiðinlegasta við flugferðir og þrjú prósent töldu hátt áfengisverð allra leiðinlegasta hlutann við flugferðir.

Fararheill.is þakkar kærlega góða þátttöku og biður fólk að taka niðurstöðunum með fyrirvara en ekki vísindaleg könnun á neinn hátt. Ný könnun er þegar komin á vefinn.