Lágfargjaldaflugfélagið easyJet hefur hent sprengju inn á þann markað með yfirlýsingu um að hver sá farþegi með vélum félagsins sem lendir seinna en 15 mínútum eftir áætlaðan komutíma fái í sárabætur frímiða með flugfélaginu hvert sem flogið er.
Gildir þetta reyndar aðeins um þá er kaupa svokallað flex farmiða hjá easyJet en þeir eru vitaskuld aðeins dýrari en hefðbundin fargjöld flugfélagsins sem þekkt er bæði fyrir appelsínugulan einkennislit sinn og að hafa á síðustu mánuðum steypt Ryanair af stalli sem vinsælasta lágfargjaldaflugfélag Evrópu.
Er hugmyndin að lokka yfir frá stærri flugfélögum fólk sem ferðast í viðskiptaerindum og má illa við því að mæta mjög seint til vinnu eða funda.
En vitandi að frímiði hvert sem er bíði ef lending er ekki nokkurn veginn á tíma gæti fengið einhverja til að láta sig hafa það jafnvel þótt engin séu lúxussæti eða sérfarrými í vélum easyJet.
Hætt er við að ákveðið íslenskt flugfélag sem lengi kenndi sig við lágfargjaldaflugfélög og gerir reyndar enn víða erlendis færi fljótt á hausinn ef það byði sams konar sárabætur.
Enginn þarf að missa þvag yfir að fá frímiða með flugfélaginu. 86 prósent allra flugferða easyJet síðustu tólf mánuði hafa verið undir 15 mínútna seinkun.






