Úttekt flugfélagsins easyJet leiðir í ljós að tveggja vikna ferðir til sólarlanda eru of langur tími að mati 70 prósent breskra ferðamanna sem í slíkar ferðir fara. Gullni meðalvegurinn í sólstrandaferðum eru ellefu dagar.

Líklegast þekkja það margar íslenskar fjölskyldur að þótt kvenþjóðinni þyki fátt betra en flatmaga á fjarlægum ströndum um alla eilífð ef því er að skipta eru karlkyns makarnir oftar en ekki að deyja úr leiðindum eftir nokkra daga og jafnvel töluvert fyrr en það.

Að þessu leytinu til má efalítið yfirfæra niðurstöður könnunar easyJet hjá Bretum yfir á Íslendinga en álíka fjöldi hlutfallslega fer árlega í sólarlandaferðir héðan og þaðan.

Eru þetta nokkur tíðindi því eins eða tveggja vikna sólarlandaferðir hafa áratugum saman þótt vera príma tími til sólarlandaferða.

Ellefu dagar þykja langflestum passlegasti tíminn. Aðeins 17 prósent kusu að dvelja skemur en viku á sólarströndum og aðeins eitt prósent voru reiðubúin að fljúga til sólarlanda til skemmri dvalar en í þrjá daga.

Ritstjórn Fararheill.is hefur oft gagnrýnt íslenskar ferðaskrifstofur fyrir steingervingahátt í ferðaúrvali. Engin þeirra býður að meðaltali nokkuð annað en viku, tvær eða þrjár í sólarlandaferðum.