Íslendingar gætu gert verri hluti en tekið sér þingmenn Ekvador til fyrirmyndar. Þrátt fyrir að landið sé og hafi ávallt verið tiltölulega fátækt hafa þarlend yfirvöld nú engu að síður ákveðið að takmarka aðgang ferðamanna að gullkálfi sínum; Galapagos eyjum.
Ekvador á lögsögu yfir Galapagos eyjum sem eru heimsfrægar fyrir rannsóknir Charles Darwin en það var eftir dvöl á eyjunum afskekktu sem hann kynnti heiminn fyrir þróunarkenningunni sem reyndar er mjög deilt um.
Eyjurnar þola ekki mikinn ágang enda smáar og dýralíf þar og gróður viðkvæmt. Engu að síður hefur ferðamönnum til eynna fjölgað úr 17 þúsund árið 1981 í 178 þúsund árið 2010. Það er mun meira en þær þola og þó yfirvöld í Ekvador þéni vel á öllu saman hefur verið tekin ákvörðun um að takmarka aðgengi frá og með 1. febrúar á næsta ári.
Sérstaklega skal takmarka ferðir skemmtiferðaskipa sem koma hingað stundum 50 talsins í hverjum mánuði. Verður eftirleiðis sama skipinu aðeins heimilt að heimsækja eyjarnir tvívegis í einum og sama mánuðinum.
Smærri ferðaþjónustuaðilar á eynni hafa fagnað þessum tíðindum enda sé augljóst að allur þessi mannfjöldi sé farinn að hafa slæm áhrif á dýralíf í eyjunum.
Sömuleiðis verður ekki lengur heimilt að kafa eftir hentugleika við eyjarnar né heldur fara um þær á bátum eða kajökum án leyfis.
View Larger Map






