Flugfélagið Icelandair hyggst frá næsta sumri bjóða Norðlendingum upp á nýja þjónustu en þá mun þeim gefast kostur að bóka flug erlendis beint frá Akureyri og fljúga þaðan til Keflavíkurflugvallar án þess að þurfa að millilenda í Reykjavík.
Var þetta kynnt fyrir skömmu og mun þessi þjónusta bjóðast tímabundið næsta sumar frá 7. júní til 30. september.
Ber að fagna slíkri þjónustu þó landbyggðarfólk eigi að njóta beinna áætlunarferða ekki síður en þeir sem sunnar búa í landinu. Hefur þó einhverra hluta vegna áætlunarflug til og frá Akureyri ekki gengið sem skyldi því slíkt hefur aðeins gengið í skamman tíma í senn þau skipti sem það hefur verið reynt.
Frá Akureyri hyggst Icelandair notfæra sér vélar systurfélagsins Flugfélags Íslands þennan tíma og munu þær lenda beint í Keflavík og því hægt að spara sér akstur til og frá Reykjavík.
Nokkrar stikkprufur ritstjórnar Fararheill.is sýna að þeir sem hefja utanlandsferðir sínar frá Akureyri næsta sumar greiða gott verð fyrir flugið til Keflavíkur og til baka samanborið við hefðbundin fargjöld Flugfélags Íslands.
Þannig fæst flugfar fram og tilbaka frá Akureyri til London 15. – 28. júní á næsta ári á 58.352 krónur. Sama flug frá Keflavík kostar 44.470. Innanlandsflugið kostar því 13.882 krónur eða 6.941 krónu aðra leið á mann.
Frá Akureyri til New York 6. – 19. júlí 2012 greiðir fólk 103.052 krónur meðan þeir sem fljúga beint frá Keflavík punga út 84.950 krónum. Þar munar 18.102 krónum sem gerir 9.051 krónu hvora leið hér innanlands.
Sömuleiðis greiða Norðanmenn 70.572 fyrir flugfar til Brussel 6. til 12. ágúst á næsta ári meðan þeir sem beint fljúga frá Keflavík fá þá ferð á 52.690 krónur. Þar munar 17.882 krónum.
Til samanburðar er allra ódýrasta tilboðsfargjald Flugfélags Íslands þetta sumarið milli Reykjavíkur og Akureyrar á 7.900 krónur aðra leið og dýrasta fargjaldið kostar 15.900.






