Dagar víns og rósa eru liðnir. Í það minnsta á stærstu farþegaskipum heims eins og Oasis of the Seas og Allure of the Seas. Hefur skipafélagið sem rekur þessi stærstu og flottustu farþegaskip heims nú tekið upp á því að krefjast aukagreiðslu á ekki svo fínum matsölustöðum um borð.

Þó ferð sé auglýst með „allt innifalið“ er það ekki svo lengur hjá mörgum skipafélögum.
Það er útbreiddur misskilningur, kannski vegna þess að ferðaskrifstofurnar eru lítið að auglýsa slíkt, að svokallaðar „allt innifalið“ siglingar á lúxusfleyjum feli í sér frían aðgang að öllu um borð í skemmtiferðaskipum.
Fram til þessa hefur reglan mestanpart verið að matur og drykkir, afþreying sem og allar skemmtanir um borð hafa verið innifaldar í verði ef frá eru taldir allra flottustu veitingastaðirnir sem eru til dæmis tveir um borð í báðum risaskipum Royal Caribbean skipafélagsins.
Hingað til hefur þó þurft að punga út aukalega til að borða á þeim tveimur en nú horfir svo við samkvæmt vefmiðlinum CruiseCritic að hefðbundnari veitingastaðir hvers matur hefur hingað til verið hundrað prósent innifalinn er það ekki lengur. Þarf nú að greiða þar sérstakt sætisgjald og er nú svo komið að greiða þarf aukalega fyrir mestallan mat um borð nema í aðalmatsalnum þar sem hefðbunduð hlaðborð er venjulega í boði og í raun ekki hægt að panta af matseðli eftir óskum.
Virðist raunin vera sú að skipafélögin eru hægt og bítandi að bæta við aukagjöldum á allan fjandann alveg eins og flugfélögin hafa gert síðastliðin ár.
Um þetta mýmörg dæmi. Stutt er síðan skipafélagið Norwegian Cruise Line hóf að taka sérstakt gjald fyrir að færa fólki mat eða drykki í káetur en það hefur hingað til verið hluti af pakkanum.
Þá er netaðgangur alls ekki innifalinn í verði í siglingum og kostar reyndar formúgu að kíkja á fésið og senda fjölskyldunni nokkrar myndir. Um borð í Oasis of the Seas kostar þriggja stunda netaðgangur litlar sextán þúsund krónur. Svo er heldur ekki alveg frítt að senda smáskilaboð. Mínútugjald farsímaþjónustu um borð í Oasis og Allure er milli sjö og átta hundruð krónur.
Þá er ótalið þjórféð sem kemur mörgum á óvart. Þjórfé greiðir hver einstaklingur hvern einasta dag og sá kostnaður í vikusiglingu hoppar auðveldlega upp í fimmtán til tuttugu þúsund krónur.







