Hótelbókunarvefurinn Hotel Reservation Service, HRS, býður þessi dægrin sérstök tilboð, 3-fyrir-2 nætur, á vef sínum og hver slær hendinni á móti ókeypis hótelnótt.
Tilboð HRS, sem er sú hótelbókunarvél sem flugfélagið Icelandair notar, gilda vel fram á veturinn og er um að ræða hin ágætustu hótel víða í Evrópu.
Er þannig um 3-fyrir-2 nætur að ræða í Róm, Barcelóna, Berlín, Munchen, Köln, Dusseldorf og Frankfurt. Sams konar tilboð eru einnig í gildi fyrir Istanbúl, Prag og Kraká en þar eru einnig í boði 4-fyrir-3 nætur.
Fjölmörg hótel eru í boði á hverjum stað en þau má finna á vef HRS hér. En tekið er þó fram að takmarkað magn herbergja sé í boði.
Athugun ritstjórnar Fararheill.is leiddi í ljós að ekkert er því til fyrirstöðu að panta vel fram í tímann og fékkst vandræðalaust 3-fyrir-2 tilboð í Róm í febrúar á næsta ári. Þarna er á auðveldan hátt hægt að spara sér tíu til 30 þúsund krónur.






