Hvað svo sem fólki kann að finnast um nýjustu og flottustu farsímana geta þeir létt ferðafólki töluvert lífið. Er þá ekki aðeins verið að tala um að hala niður kort af borgum og áfangastöðum gegnum netið í símana heldur eru sífellt fleiri flugvellir farnir að bjóða íbætur sem sannarlega létta lífið í þeim byggingum.

Smartsímar eru til margra hluta nytsamlegir ekki síst á stærri flugvöllum

Smartsímar eru til margra hluta nytsamlegir ekki síst á stærri flugvöllum

Það gildir til að mynda um íbætur, apps, sem margir stærri flugvellir heims eru farnir að bjóða og það yfirleitt frítt. Með slíkt uppsett í snjallsímum er engin þörf lengur að valsa fram og aftur og skoða brottfararskilti því þær upplýsingar koma jafnóðum í símann.

Á troðnum flugvöllum á borð við Heathrow í London er slíkt sannarlega þess virði að hafa því nákvæmlega sömu upplýsingar birtast þar um komur og brottfarir og birtast á opinberum skiltum í flugstöðvarbyggingunni. Sé um seinkun eða tafir að ræða fær fólk þær upplýsingar strax og getur þá jafnvel notað tímann í annað en sitja og bíða.

Íbætur má finna meðal annars fyrir Kastrup og Heathrow, Frankfurt, Schiphol og Charles de Gaulle svo fáir séu nefndir.