Dorset hérað í Englandi er að öðrum ólöstuðum eitt af fallegri svæðum landsins og ekki skemmir fyrir ferðalanga að þangað er ekki langt að fara frá London. Suðurströnd héraðsins er gullfalleg og þar er að finna eina svæðið í Englandi öllu sem skráð er á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna.
Þar er vitaskuld átt við hið víðfræga Stonehenge og nágrenni en það er líka í Dorset sem fundist hefur óvenjulega mikið magn steingervinga frá hinum ýmsu tímum og þar á meðal aftan úr fornöld þegar skrímsli á borð við risaeðluna T-Rex reikuðu um jörðina.
Og nú er sannarlega ástæða til að heimsækja Dorset fyrir alla áhugamenn um risaeðlur fortíðarinnar. Þar er nefninlega búið að koma fyrir í héraðssafni Dorset, Dorset County Museum, einni stærsta og öflugustu risaeðlu sem fundist hefur.
Pliosaur nefnist sú en steingervingur af slíku skrímsli fannst við strönd Dorset fyrir tveimur árum.
Og sæskrímslið Pliosaur var engin smásmíði. Risakjaftur hennar og afl hefði gert henni auðvelt fyrir að bíta hefðbundin fólksbíl í sundur og telja vísindamenn að ógnvekjandi eðlur á borð við T-Rex hefðu líklega verið létt hádegissnakk hjá slíku skrímsli.







