Ráð er gert fyrir að tólf milljón ferðamenn heimsæki höfuðborg Katalóníu, Barcelóna, á næsta ári en það eru tíu milljón fleiri ferðamenn en þangað komu árið 1993. Ýmsir heimamenn telja að nóg sé komið og að fjöldinn sé farinn að verða helst til mikill.

Það er öxl í öxl á flestum vinsælli ferðamannastöðum í Barcelóna. Það pirrar marga.

Það er öxl í öxl á flestum vinsælli ferðamannastöðum í Barcelóna. Það pirrar marga.

Hefur verið stofnuð sérstök hreyfing íbúa í borginni sem vilja færri en ekki fleiri ferðamenn enda sé orðið vonlaust að njóta sumardaga í borginni lengur sökum fjölda ferðamanna hvarvetna. Götur séu yfirfullar, umferðin martröð, fátt rísi nema ný hótel og ímynd Barcelóna sem yndislegrar og fallegrar borgar sé farin að láta á sjá. Barcelona sé hætt að vera ekta sökum flóðs ferðamanna.

Ritstjórn Fararheill hefur heimsótt Barcelóna ítrekað um tólf ára skeið og á þeim tíma hefur borgin sannarlega tekið miklum breytingum til hins verra. Um aldamótin var hægt að rölta um Römblurnar á fallegum degi án þess að rekast sýknt og heilagt í annað fólk en það er vonlaust í dag nema skáskjóta sér á milli hverrar fólksþvögunnar á fætur annarri.

Þá er einnig áberandi að þau fjölmörgu nýju fyrirtæki sem opnað hafa í Barcelóna eftir að ferðamannastraumurinn fór að snaraukast upp úr aldamótum eru ekki spænsk eða katalónsk. Það eru erlendar risakeðjuverslanir á borð við Starbucks og HaagenDaaz. Þær ryðja auðveldlega smærri verslunum og fyrirtækjum úr vegi og með því breyta þau þeim sjarma sem Barcelona býr yfir bæði gagnvart íbúum og ekki síður þeim er koma til heimsóknar.