Tíðindi

Brotlending Iceland Express

  18/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Þau atvik þar sem hundruðir farþega flugfélagsins Iceland Express þurfa að láta sér lynda að bíða fleiri klukkustundir og jafnvel sólarhring til að komast á áfangastað eru orðin svo fjölmörg að þau eru vart fréttnæm mikið lengur.

Um helgina stöðvuðu franskir eftirlitsmenn eina vél flugfélagsins með þeim afleiðingum að farþegarnir komust ekki af stað frá París fyrr en eftir rúman sólarhring.

Enn einu sinni segjast forsvarsmenn hafa sent öllum farþegum skilaboð um tafir sem enginn kannast við að hafa fengið fyrr en eftir að hafa beðið klukkutímum saman án allra fregna.

Fararheill fjallaði ítarlega um herfilega þjónustu og stundvísi Iceland Express vel áður en aðrir fjölmiðlar hófu að fjalla um sömu mál. Nánast í hvert skipti er sagan sú sama. Flug tefst, farþegar ekki látnir vita heldur bíða tímunum saman á ókunnum flugvöllum, oft án matar eða drykkjar, sem þó eru skýr ákvæði um að flugfélagið eigi að bjóða fólki eftir tveggja eða þriggja stunda bið.

Þá bíður flugfélagið fram úr hófi með að senda fólk á hótel eins og reglur kveða einnig á um þegar tafir verða verulegar. Ritstjórn veit fjögur dæmi þess að farþegar hafa loks verið sendir á hótel eftir langa bið þegar klukkan nálgaðist miðnætti. Þá er dæmið um helgina ekki í fyrsta sinn sem IE lætur ókunnugt fólk deila hverju herbergi.

Til samanburðar hefur ritstjórn reynslu af því að eitt af betri flugfélögum heims, Emirates, flytur farþega á hótel tefjist flug um meira en 40 mínútur.

Síðast en ekki síst hefur flugfélagið Iceland Express ítrekað hafnað að greiða farþegum bætur sem verða að sækja rétt sinn til Flugmálastjórnar og úttekt Fararheill á þeim úrskurðum leiddi í ljós að Iceland Express hefur þar tapað nánast öllum málum.

Iceland Express ávann sér ákveðið orð þegar félagið bauð fyrst utanlandsferðir á mun vægari verðum en samkeppnisaðilinn Icelandair fyrir nokkrum árum og vitaskuld er öll samkeppni af hinu góða.

En hætt er við að ítrekaðar fregnir af hörmulegum uppákomum, töfum, seinkunum, niðurfellingum og þjónustuskorti flugfélagsins hljóti að fara að segja sitt. Sérstaklega yfir sumartímann þegar Íslendingar hafa úr fleiri möguleikum að velja en aðeins Iceland Express og Icelandair. Það er nefninlega lítið varið í ódýrara fargjald ef alltaf er komið fram við viðskiptavinina eins og dæmin sýna.

Framkvæmdastjórinn Matthías Imsland hefur beðist afsökunar og lofað að rætt verði við alla farþega vélarinnar sem var stöðvuð í París um helgina. Ritstjórn bíður spennt að vita hvort og þá hvaða skaðabætur hann bjóði því þar með er komið fordæmi fyrir alla aðra sem í framtíðinni eiga eftir að lenda í svipuðu.