Tíðindi

Sögðu upp samningi við IE vegna seinkana

  17/06/2011desember 4th, 2014No Comments

Þjónustufyrirtækið Airport Associates sagði upp samningi sínum við flugfélagið Iceland Express vegna viðvarandi seinkana hjá flugfélaginu.

Sá félagið meðal annars um að útvega flugfélaginu mat og varning til að selja um borð en undanfarnar vikur hefur slíkt verið af mjög skornum skammti um borð. Er þannig úrval af mat, drykkjum og vörum öðrum um borð lítið sem ekkert en í samtali við Fréttablaðið segir Matthías Imsland, forstjóri Iceland Express, að þetta stafi af töfum við að koma á stofn eigin þjónustufyrirtæki. Tímafrekt hafi verið að stofna lager og þjálfa starfsfólk. Þess vegna sé úrvalið um borð nú ekki hið sama og auglýst er í bæklingum félagsins.

Verður þó undarlegt að teljast að lengur en tvo mánuði hafi tekið að komu upp birgðum og þjálfa starfsfólk en samningi Iceland Express og Airport Associates var sagt upp í lok mars í ár.