Varla er annað hægt en brosa út í annað og jafnvel bæði sé maður eðlilegur í andliti yfir því sem fólk gengst við í ýmsum vefkönnunum. Í ljós kemur í einni slíkri að 49 prósent þátttakenda játa sig seka um að hafa stolið sjampói af hótelherbergi.

Það er fátt sem fær að vera í friði á hótelherbergjum.

Það er fátt sem fær að vera í friði á hótelherbergjum.

Nú er ritstjórn Fararheill nokkuð sigld og man ekki eftir sérstakri löngum í þau sjampó sem alla jafna eru í boði á hótelum. Fæst þar annað en iðnaðarframleitt jukk þó vissulega séu þar undantekningar á.

Sjampó er vinsælasti hluturinn sem fólk viðurkennir að hafa tekið með sér eftir dvöl á hóteli í könnun Skyscanner en nokkrir aðrir hlutir vekja líka athygli fyrir utan þetta hefðbundna eins og handklæði og inniskó.

Eitt prósent þátttakenda hafa þannig stolið málverkum af hótelum, sex prósent hafa hirt öskubakka, 0,7 prósent hafa stolið gluggatjöldum, 0,8 prósent hirt batterí úr fjarstýringum og hvorki fleiri né færri en 1,7 prósent hafa stolið sjónvörpum af hótelherbergjum. Ekki eru það þó nítján tommu túbusjónvörp sem heilla heldur smærri flatskjáir sem smellpassa í ferðatöskur.

Spurningin er þó hvernig fólk hyggst komast upp með að stela sjónvörpum nema það sé skráð inn á fölskum forsendum. Ella sáraeinfalt fyrir hótelstjórn að senda reikning. Svo er nú vægast sagt dapurt að sjá ástæðu til að eigna sér notaðar rafhlöður.