Fjöldinn allur af alls kyns tilboðssíðum hafa sprottið upp á netinu á undanförnum árum og ekki síst gildir það fyrir ferðabransann. Eru margir þeirra hreinar gullkistur fyrir alla þá sem svo mjög eru sýktir ferðabakteríunni að þeir þurfa reglulega að kreista hverja krónu til að ferðast.

Tiltölulega fáir virðast vita að tveir stórir bandarískar tilboðsmiðlar bjóða upp á ferðatilboð reglulega. Er þar um að ræða flóamarkaðsvefinn eBay og útsölumarkaðinn Overstock.

Á vef eBay í Bandaríkjunum, ebay.com, er hægt að bjóða í fjölmarga ferðapakka og reisur hvern einasta dag og þó lágmarksverð séu upp og niður eins og gengur er hægt að gera þar hreint ágæt kaup og á það ekki síst við um þegar stærri hópar eiga í hlut.

Útsölumarkaður Overstock, overstock.com, er minna þekktur hérlendis en sá virkar á svipaðan hátt og ShopUSA og leitar uppi magntilboð á eldri vörum og þjónustu sem framleiðendur vilja losna við. Þar eru einnig ferðir reglulega í boði.

Á báðum miðlum er bæði hægt að gera tilboð í ferðir eða gistingu og vona það besta eða kaupa beint á uppsettu verði.

Sjálfsagt er að forvitnast annars lagið en gallinn við báða miðla hvað okkur Íslendinga varðar er að langstærsti hluti ferðatilboðanna miðast við bandarískar þarfir og því er mikið um ferðapakka til dæmis til Mexíkó eða karabíska hafsins að ræða.

Engu að síður enn einn möguleikinn að leita uppi gott frí á ódýran hátt.