Á stundum verður manni einfaldlega orða vant. Ferðaskrifstofan Úrval Útsýn auglýsti fyrir nokkru siglingu um Miðjarðarhafiðið frá 10. til 21. júní og auglýsir nú aftur tvö sæti laus vegna forfalla í þá sömu ferð.
Um er að ræða flug til og frá Barcelona, gistingu þar í fjórar nætur og vikulanga siglingu frá sömu borg þar sem stoppað er í Toulon, Nice, Písa, Róm, Napolí og á Capri áður en haldið er til Barcelona á ný og svo heim.
Það góða við þessa ferð ÚÚ er að fararstjórinn er hinn gallharði Kristinn R. Ólafsson, Madridíngur með meiru, og auðvitað fín sigling með fínu skipi til fínna staða.
Gallinn hins vegar er algjörlega fráleit verðlagning ferðaskrifstofunnar og hér er hvers vegna:
Þau forfallasæti sem nú eru í boði eru í káetu með svölum um borð í Liberty of the Seas skemmtiferðaskipinu. Kostnaður samkvæmt heimasíðu ÚÚ er 399.000 á mann miðað við tvo fullorðna saman. Öll ferðin kostar því hjón eða par 798 þúsund krónur. Er þá meðtalin gisting á fjögurra stjörnu Tryp Apollo hótelinu í fjórar nætur og flug heim og til baka.
Samkvæmt heimasíðu Royal Caribbean sem rekur Liberty of the Seas kostar káeta með svölum umrædda ferð 146 þúsund (882 evrur) á mann. Samtals fyrir tvo 292.000.
Fjórar nætur á Tryp Apollo í herbergi fyrir tvo með morgunverði samkvæmt heimasíðu hótelsins kostar samtals 124 þúsund (753 evrur) eða 62 þúsund deilt niður á tvo.
Samtals sigling og gisting kostar því samtals 416.000 krónur eða 382 þúsund krónum ódýrara en uppgefið verð hjá Úrval Útsýn.
Vitaskuld á þar eftir að telja til flug, fararstjórn og þjórfé um borð en létt leit leiðir í ljós að jafnvel með svo litlum fyrirvara má fá flug með Icelandair á 118.000 umrædda daga. Auðvitað greiðir Úrval Útsýn ekki auglýst verð fyrir flug en engu að síður er ferðin aðeins komin í 652 þúsund krónur.
Flugið, gistingin og siglingin er með þessum hætti 146 þúsund krónum ódýrari en hjá Úrval Útsýn. Það er svo mikið sem heilar atvinnuleysisbætur í einn mánuð. Munurinn er efalítið meiri þar sem ferðaskrifstofan fær sérverð sem ekki býðst einstaklingum og gildir það um siglinguna, hótelin og flugið.
Standi löngun til að prófa lúxussiglingu um Miðjarðarhafið er ráð að bóka farið beint hjá skipafélaginu, bóka flug til London og með lágfargjaldaflugfélagi til Spánar og stíga beint um borð. Slík ferð ætti ekki að kosta meira en 400 þúsund með öllu nema Kristni R. Ólafssyni. Það er sparnaður upp á tæpa hálfa milljón og hægt að bjóða Kristni með og samt koma út í plús.






