Tíðindi

60 prósent Íslendinga enn að ferðast

  07/10/2009maí 17th, 2014No Comments

Þrátt fyrir að Íslendingar öðrum fremur hafi lent í mesta fjármálafellibyl sem dunið hefir á nokkurri þjóð í sögunni eru nokkur teikn á lofti um að heldur sé meira úr vandræðum okkar gert en efni standa til. Þannig benda tölur frá Leifsstöð til kynna að meirihluti Íslendinga haldi áfram að ferðast og hafi ferðast á þessu hörmungarári.

Þannig fóru 43.8 prósent færri frá landinu en á sama tíma í fyrra en á þessum tíma fyrir ári hafði bankahrun enn ekki átt sér stað. Engu að síður þýðir það að tæplega 60 prósent landsmanna eru enn á faraldsfæti miðað við sama tíma í fyrra. Vissulega er ráð fyrir gert í þessum samanburði að allir landsmenn ferðist árlega sem kannski er fullmikið tekið í árina en rannsóknir síðustu ára sýna þó glögglega að yfir 90% Íslendinga ferðuðust reglulega erlendis hin síðustu ár.

Við þetta má bæta að samkvæmt Ferðamálaráði hafa fleiri Íslendingar ekki ferðast um sitt eigið land í langan tíma og það vita allir að ferðalög innanlands eru oft síst ódýrari en ferðalög utanlands.

Eru þessar tölur í takt við það sem fræðingar vilja meina; ferðalög eru orðin það ómissandi hluti af tilverunni að slíkt er ekki skorið niður nema í ítrustu neyð.