F rakkar fíla ekki alla og fara ekki í grafgötur með það. Jafnvel nágrannarnir Bretar fara seint á lista Frakka yfir skemmtilegt og geðugt fólk og Frökkum er í lófa lagið að líta örlítið niður á Spánverja og Ítali svo dæmi séu tekin.

Best að kunna frönsku ætli fólk að klæða sig með þessum hætti í París

Best að kunna frönsku ætli fólk að klæða sig með þessum hætti í París

Og fátt þola Frakkar verr en gert sé grín að þeim á eigin heimavelli. Nægir í þeim tilfellum að þeir haldi að um grín sé að ræða þó saklausir ferðamenn haldi annað.

Þess vegna er kannski ráð að hugsa sig vel um áður en þú átt næst leið um París.

♥  Alpahúfan, teygt yfirvaraskegg eða rauður hálsklútur eru ekki að gera sig á erlendum ferðamanni. Allar tilraunir til að falla inn í hópinn eru einstaklega yfirlætislegar og brjóstkumkennanlegar. Stundum verða menn líka fúlir með slíkar tilraunir og gefa ferðafólki raunverulegan skammt af franskri gestrisni; hnefahögg í feisið.

♥  Ekki láta þér eitt augnablik detta í hug að þrjár klukkustundir nægi til að skoða Louvre. Vikan dugar vart til sé raunverulega ætlunin að skoða þær dásemdir sem fyrir augu ber. Hálfur dagur er þó fínn en reyndu að fara eldsnemma áður en múgur og margmenni mætir á staðinn í þúsund rútum.

♥ Gjafmildi Frakka á sér takmörk. Ótrúlegur fjöldi ferðamanna reynir að komast með lest á flugvöllinn með sama miða og þeir notuðu á leið inn í borgina. Flestir þeirra hitta fyrir öflugt lið lestarvarða sem skrifa hiklaust feita sekt á alla sem slíkt reyna þrátt fyrir alla veikar ömmur og krabbamein í lungum.

♥  Margir sem til háborgar tískunnar, eins og París og oft kölluð, koma halda að lúxusvörur séu ódýrari þar en annars staðar. Það er argasta kjaftæði. Þær eru dýrari ef eitthvað er.

♥  Það er freistandi að panta á la carte matseðil á veitingastað í París en á því er lítið að græða. Nær lagi væri að panta matseðil dagsins sem yfirleitt samanstendur af nokkrum mismunandi réttum sem bæði fylla magann og gera mönnum kleift að smakka sannkallaðan franskan mat á lágmarksverði.