H ér er eitthvað til að kjammsa yfir í huganum. Ef þú situr við neyðarútgang í rellu sem nauðlendir, hversu líklegt er að þú hjálpir öðrum út en hugsir ekki bara fyrst og fremst um sjálfa(n) þig?

Hvers konar fólk situr við neyðarútganga í farþegavélum? Treystir þú þeim?
Við hér skeptísk. Sem er ástæðan fyrir að við skoðum alltaf HVAÐA einstaklingar sitja við neyðarútganga í rellum og höfum kvartað yfir einstaklingum sem þar sitja oftar en einu sinni.
Í annað skiptið var viðkomandi helst til þybbinn til að auðvelt væri að troðast hjá í neyðartilfelli en í hinu tilfellinu var viðkomandi kona á sextugsaldri. Hún andaði og leit út fyrir að vera hraust og hress en þá var það upptalið. Ekki séns í helvíti að sú síðarnefnda stæði í lappirnar og aðstoðaði tugi farþega í geðveiku stressi og látum.
Okkur varð hugsað út í þetta fyrir tveimur árum þegar flugþjónar Norwegian frá Stokkhólmi til Oslóar skipuðu einstaklingi við neyðarútgang að færa sig annað fyrir flugtak. Viðkomandi hafði greitt sérstaklega fyrir sæti með meira fótaplássi en gat þess sennilega ekki að hann væri í töluverðri yfirvigt við bókunina.
Kauði brást ókvæða við og tólf mínútna töf varð á flugtaki sökum þessa en svo komu flugþjónarnir til okkar, tveimur sætaröðum aftar, og báðu okkur vinsamlegast að færa okkur í sæti við neyðarútgang. Við mölduðum í mó en árangurslaust. Reyndin er nefninlega að það VERÐUR einhver að sitja við neyðarútganga í flugvél á flugi.
ERTU KLÁR Í SLAGINN?
Allt í einu var par úr ritstjórn Fararheill sest í príma sæti í rellu. Alles gut og príma með það. Gott fótapláss er aldrei mínus 🙂 Nema ef vera skyldi að báðir aðilar hugsuðu látlaust um það alla leiðina hvort þeir myndu virkilega hjálpa fólki við nauðlendingu eða bara setja sjálfa sig í fyrsta sætið og drífa sig út fyrst allra.
Þetta er meira en að segja. Öllum farþegum við neyðardyr flugvéla BER SKYLDA til að aðstoða alla aðra farþega ef eitthvað bjátar á. Þeir farþegar verða nánast flugþjónar á svipstundu með tilheyrandi ábyrgð með því einu að sitja við neyðardyr.
En galli er á gjöf Njarðar sem fyrr. Flugþjónum er tæknilega óheimilt að yfirgefa rellu við nauðlendingu fyrr en ALLIR FARÞEGAR eru komnir út. Svipað og skipstjórum er óheimilt að yfirgefa sökkvandi skip nema þeir séu síðastir allra.
Nema hvað! Flugþjónar fá greitt fyrir sitt og sína hugsanlegu fórn. Farþegar við neyðarútganga þurfa oftar en ekki, þessa síðustu og verstu, að greiða aukalega fyrir sæti með góðu fótaplássi. Sem eru öll sæti við neyðarútganga.
Spurningin er þessi: er fólk sem pungar út fimm þúsund krónum extra til að fá gott fótapláss góðir kandidatar til að aðstoða allt það fólk sem ekki hafði efni á sama lúxus?
Varla….
Óhrædd við að nota nífaldan heimsmeistara í hótelbókunum samkvæmt World Travel Awards hér að neðan. Það er eina tekjuleið okkur hér 😉




