Þ eir sem reynt hafa segja að aðeins einn ljóður sé á þjóðhátíð Færeyinga sem meðal Íslendinga gengur undir nafninu Ólafsvaka. Hún er svo skemmtileg að þeir sem einu sinni prófa verða að koma aftur og aftur og aftur og aftur.

Gestrisni og almenn gleði virðist Færeyingum í blóð borin. Mynd Thorshavn.fo
Hvað gerir hana svona merkilega?
Svarið er margþætt en aðalástæða þess að Ólafsvaka Færeyinga þykir skara framúr öðrum er sú kurteisi og almennilegheit sem erlendum gestum er sýnd yfir alla hátíðina. Margir sem þangað fara kunna sögur af því að heimili heimamanna standa öllum opin og gestrisnin slík að gangi menn inn um einhverjar hússins dyr í Færeyjum þá daga sem hátíðin stendur yfir sé þeim umsvifalaust vísað til sætis og matur og mjöður borinn á borð hið snarasta.
Það er nefninlega galli við margar annars skemmtilegar hátíðir víða um heiminn að gestir eru misvelkomnir og sums staðar slagsmál og drykkjulæti algeng. Ekki er laust við þau hér heldur en í 99 prósent tilvika eru það ekki heimamenn sem að því standa heldur ferðamenn sem þola ekki að fá sér aðeins í tánna.
Ólafsvakan, eða Ólavsøka, er ávallt haldin síðustu vikuna í júlí og segir það sitt um stemmninguna og ekki síður Færeyinga sjálfa að hátíðin, sem að forminu til stendur aðeins einn til tvo daga, tekur nú heila viku hjá gleðiríkum gestgjöfum. Þjóðhátíðardagurinn sjálfur er 29. júlí en þessum degi hafa Færeyingar fagnað í þúsund ár en dagurinn er dauðadagur Ólafs heilaga og sami dagur og Færeyingar stofnuðu þing sitt fyrir margt löngu.
Það aftur útskýrir hvers vegna prestar og þingmenn ganga fylktu liði þennan dag frá Lögþingshúsi og í dómkirkjuna og svo aftur til baka eftir guðsþjónustu á hátíðinni í Þórshöfn.
Hátíðinni er fagnað alls staðar í Færeyjum en mesta skemmtunin er í Þórshöfn og hefur undanfarin ár erlendum gestum fjölgað ár frá ári. Reyndar er sá hængur á að gistipláss er af skornum skammti í Þórshöfn og þarf að panta gistingu með duglegum fyrirvara til að fá inni meðan á Ólafsvökunni stendur. Þeim sem það tekst verða þó ekki sviknir. Sjálfsagt að skoða hvað finnst á hótelbókunarvél Fararheill hér að neðan en fjögurra til sex mánaða fyrirvari ætti að nægja til að tryggja herbergi eða hús til leigu.




