Ó takmarkaður akstur er jafnan það sem flestar bílaleigur auglýsa og lofa ef frá eru taldar þessar íslensku sem gefa þér þetta 100 til 200 kílómetra áður en til koma feit aukagjöld. Á þessu eru þó stöku undantekningar vestanhafs sem ágætt er að vita um.

Smáa letrið í bílaleigusamningum vestanhafs getur komið þér um koll fjárhagslega.
Íslendingar sem voru á ferð vestanahafs í haust höfðu samband og vildu benda fólki á að hjá tilteknum bílaleigum þá HÆTTIR ótakmarkaður akstur að gilda ef farið er milli fylkja í Bandaríkjunum. Þá kemur umsvifalaust til aukagjald upp á rúmar 30 þúsund krónur eins og gerðist hjá þessum hjónum sem leigðu sinn bíl gegnum bílaleiguna Thrifty. Það plús kílómetragjald á allan akstur utan þess fylkis þar sem bíllinn var tekinn á leigu.
Í ljós kom að þetta er nefnt í skilmálum bílaleigunnar en mjög neðarlega og eins og allir vita nenna fæst okkar að eyða klukkustund með nefið ofan í skilmálum þegar bíll er leigður á erlendri grund. Við erum uppfull af gleði og hamingju og viljum komast af stað í ævintýrin.
Við lauslega athugun okkar á skilmálum bílaleiga kemur í ljós að það eru sannarlega takmarkanir á akstri utan þess fylkis þar sem leiga fer fram en þær takmarkanir jafn tilviljanakenndar og bílaleigurnar eru margar. Ein stór bílaleiga heimtar aukagjald plús kílómetragjald ef ekið er frá Flórída yfir til Georgíu meðan sú næsta gerir það ekki.
Það því full ástæða til að spyrja sérstaklega út í þetta atriði þegar bíll er leigður vestanhafs. Kílómetragjald er fljótt að telja í hundruðum þúsunda ef flakkað er duglega um þetta stóra land og vissulega ömurlegt að fá slíkan reikning í bakið þegar för er lokið. Og ekki halda að þú komist upp með að flakka milli fylkja án þess að nokkur verði var. Velflestar bílaleigur bandarískar eru með ökurita í bílum sínum og sjá á augabragði hvert þú eða þið þvældust.




