Tíðindi

Vikutilboð Travelzoo

  13/05/2009maí 11th, 2014No Comments

Ferðamarkaðsvefurinn Travelzoo tekur daglega saman öll helstu ferðatilboð sem í boði eru frá Bretlandi og vikulega birta þeir lista yfir bestu tilboð hverrar viku fyrir sig.

Fararheill.is mun eftirleiðis birta hér vikulista Travelzoo svo lesendur missi ekki af neinu. Fararheill.is gengur reyndar skrefinu lengra og birtir ennfremur vefsíður þeirra ferðaskrifstofa eða flugfélaga sem tilboðin bjóða. Þannig er hægt að skoða tilboðin nánar og panta ferðir beint og milliliðalaust.

Bestu tilboðin þessa vikuna:

  • Vikuferð til Möltu með gistingu á fjögurra stjörnu hóteli með öllu inniföldu á 55.616 krónur á mann. Gildir í júní en bóka þarf fyrir 20.maí. www.hotelsbooked.com
  • Vikuferð til Sharm el Sheik í Egyptalandi á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu á 76.729 krónur á mann. Gildir um ferðir í nóvember, janúar og febrúar en bóka þarf fyrir 20.maí. www.qwertytravel.com
  • Fjórtán nátta sigling um Miðjarðarhafið með skemmtiferðaskipinu Norwegian Jade á 134.400 krónur á mann. www.GillsCruise.com
  • Vikusigling á Níl með tíu skoðunarferðir innifaldar í verðinu á 67.140 krónur á mann. Brottför 29.júní. www.africansafariclub.com
  • Fjölskyldudagar hjá flugfélaginu Lufthansa. Hægt að fljúga víða um heim og greiða aðeins skatta fyrir öll börn yngri en tólf ára. www.lufthansa.com

* Verð eru reiknuð miðað við gengi dagsins 13.maí

**Verð miðast við ferðir frá Bretlandi.