Það er aldrei góð latína að ráðast á minnimáttar en við hjá Fararheill lítum svo á að í góðu lagi sé að sparka frá sér þegar um stærrimáttar er að ræða.

Ástæða til að greina frá einokunartilburðum Hotels.com en ekkert að því að auglýsa áfram þjónustu þeirra á sama vef.
Vinsæll ferðavefur hérlendis kallast turisti.is og er bæði fjölsóttur og í hann vitnað af áfergju af flestum fjölmiðlum landsins.
En ólíkt Fararheill er sá vefur ekki sérstaklega að beita sér fyrir íslenska neytendur og ferðalanga heldur makar krókinn og auglýsir ýmis sértilboð sem vitaskuld gefa honum eitthvað í aðra hönd.
En steininn tók þó úr hér í vikunni þegar sá vefur greindi frá því að tæplega 400 hótel á Norðurlöndum hefðu sagt sig úr samstarfi við hótelbókunarvélina Hotels.com sökum heimtufrekju. Vilja menn hjá Hotels.com fá einkarétt á að bjóða allra ódýrustu herbergi hverju sinni og heimta feitan seðil í gjöld að auki.
Það er klárlega jákvætt að greina frá slíkum einokunartilburðum stórra hótelbókunarkeðja sem auðvitað gera illt verra fyrir neytendur eins og alltaf. Túrista fannst sem sagt ástæða til að greina frá slíku en finnst þó engin ástæða til að skipa út sinni eigin hótelbókunarvél. Sem er nota bene Hotels.com.
Slíkt gæti auðveldlega flokkast undir tvískinnung samkvæmt orðabókum.






