Tafir á flugi frá Leifsstöð eru orðnar æði algengar. Fátt sýnir það betur en listi yfir brottfarir þennan daginn. Af 24 brottförum frá miðnætti til klukkan 9 í morgun voru 24 brottfarir á eftir áætlun.

Kannski met. Hver og ein einasta brottför frá Keflavík á eftir áætlun. Skjáskot

Kannski met. Hver og ein einasta brottför frá Keflavík á eftir áætlun. Skjáskot

Þetta má glögglega sjá á skjáskotinu hér til hliðar en einnig má skoða vef Keflavíkurflugvallar. Þar virðist tíu til tuttugu mínútna töf á brottför vera normið en ekki undantekning. Í tilfelli Wow Air eru tafirnar allt upp í tvær stundir.

Ekki virðist forsvarsmönnum tafirnar vera neitt til að tala um. Ekkert er varað við þeim né varað við mikilli „umferð um flugvöllinn“ sem þó hefur verið áberandi á vef þeirra í allt haust. Það lítur líka illa út svona skömmu eftir að hafa gjörbreytt Leifsstöð „til hins betra fyrir farþega.“ Betra að sleppa því alfarið.

Samt er ekkert sem bendir til annars en það sé of mikil traffík sem tefji brottför véla. Ekkert að veðri og ekki eru mjög áberandi tafir á vélum sem komið hafa inn til lendingar á sama tíma.

Ekkert er heldur að finna á vef Wow Air hvers vegna nánast allar þeirra vélar eru verulega mikið á eftir áætlun umfram það sem gerist hjá öðrum. Ágætt þó að hafa í huga fyrir viðskiptavini þeirra að flýta sér ekki um of út á völl.