Allt að tíu þúsund krónur gætu lagst ofan á flugfargjöld fram og til baka frá því sem nú er ef olíuverð heldur þeim hæðum sem það er nú komið í.
Staðfestir framkvæmdastjóri Iceland Express, Matthías Imsland, við vefmiðilinn Eyjuna að hækkanir séu næsta óumflýjanlegar og geti tekið gildi næstu daga. Talar hann um hækkanir um þúsundir króna í því tilliti.
Heimildir Fararheill.is herma að innan herbúða Icelandair sé einnig fundað um fargjaldshækkanir enda eru eldsneytiskaup einn stærsti útgjaldaliður hvers flugfélags fyrir utan laun.






